31.07.2006 14:37:45 / sakura

Ferðadoðrantur

 

 

 Sjá myndir til vinstri



 

            Ekki er langt síðan ég snéri heim til Tskuba úr tveggja vikna ferðalagi með vinkonu minni frá NY. Í þetta sinn var gist í Tokyo, Kyoto, Yakushima og Hiroshima. I Tokyo var aðallega borðað og sjoppað. Einnig kíkt á söfn og djamm á klúbbnum Space Lab Yellow sem er einn af aðal Tokyo klúbbunum, skilst mér. Það djamm skar sig úr öðrum djömmum t.d. fyrir hvað allir voru í hamingjusömum fílíng. Enginn troðningur, enginn dónaskapur, og ekkert káf bara allir vinir eins og á gamlárskvöld eða í gay pride göngu.

            Í Kyoto er mikið um skemmtilega bari og lítið um það að vakna snemma. Af tveimur og hálfum degi sem við höfðum í þessum höfuðstöðvum Japanskrar menningar tókst okkur að eyða heilum degi í það að leita að túrista skrifstofunni til að afla okkur upplýsinga. En hún er rækilega falin á annari hæð í ísbúð nokkurri skammt frá einhverju hofinu. Athugið að inngangur er á bakvið húsið, hjá ruslagámunum. Það kom alveg flatt upp á sex starfsmenn skrifstofunnar að við skulum hafa fundið þá.

            Mér fannst Kyoto gera fýluferðina upp við okkur næsta dag þegar við römbuðum á hof sem var greininlega minna þekkt en hin 2000 sem fyrirfinnast þarna því það var tómt fyrir utan gullna Búdda styttu og reykelsis mökk. Þar sátum við Emily á einar á strámottonum í þungum þönkum í 40 mínutur, en þá vorum við truflaðar af hjörð af múnkum sem komu inn til að þylja upp bænir og syngja. Við sátum nátturulega dolfallnar og hlustuðum á.

            Yakushima er lítið þekkt smáeyja sunnan við meginlönd Japans. Sá litli hluti sem ekki er þakin þykkum skógi býr yfir póstkorta hvítum ströndum með útlit yfir fagurblátt haf. Við sáum fossa, apa, dádýr, og krabba á vappi um göturnar. Við fórum í 11 tíma fjallgöngu til að skoða m.a. 7200 ára gamalt tré. Við busluðum á yfirgefinni strönd í hlandvolgum sjó. Við fórum í nátturulega heita laug niðri í fjöru þaðan sem sást yfir mikla nátturufegurð. Karlmennirnir í lauginni gátu þó lítið verið að því að dást að ævintýralegu landslaginu eftir að erlendu blondínurnar mættu á svæðið. Þeir gláptu þess í stað opinskátt og opinmunna á okkur. Það mætti kannski fylgja sögunni að í Japan er það talinn ósiður að fara öðruvísi en nakin í potta af öllum sortum, jafnt utandyra sem innan.

            Athyglisvert einnig við það að vera í Yakushima var það að gista í heimahúsum mismunandi fólks. Margir hafa sitt brauð af því að leigja gistipláss inni hjá sér yfir sumarið. Þarna baðaði maður sig innan um gamlar meikdollur og rikuð rakvélablöð, gekk í gegn um eldhús og svefnherbergi fólks, og borðaði matinn þeirra. Þetta veitti ákveðna innsýn. Og ekki eru það klárustu , eðlilegustu , eða fallegustu eintökin af Japönum sem hafa dagað uppi á þessari 14,000 manna eyju. En ég fékk mikið að æfa mig í Japönsku, og ein húsfreyan hefur tekið upp á því að hringja í mig annarslagið. Bara svona til að spjalla held ég.

            Á heimleiðinni stöldruðum við nógu lengi við í Hiroshima til þess að sýna Emily 10 mínutna útgáfuna af atomsprengju minnisvörðunum. Fegnar að vera komnar aftur úr frumskoginum klæddumst við þeim fötum sem lyktuðu hvað best og fórum út að borða eitthvað fínt. Eiginlega var bullandi prinsessustemning hjá okkur þar til við kvöddumst svo háskælandi á Narita tveimur dögum síðar.

Kitta skrifaði
Vaaaaaá... þetta hefur verið æðislegt. Myndirnar eru frábærar, það er helst að það vanti fleiri myndir af þér, svona fyrir vinkonur hinum megin á hnettinum sem eru farnar að gleyma hvernig þú lítur út! :p
Auður skrifaði
FRÁBÆR FERÐASAGA!!!! Hló mig máttlausa af pottaferðinni þinni og húsfreyjunni sem hringir í þig annars lagið :) Rosalega hefur verið gaman hjá ykkur! Er sammála vinkonu þinni um að myndirnar séu frábærar en hefðu mátt vera fleiri af þér :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.